"Að berjast fyrir betri heimi fellur aldrei úr gildi" - Þorvaldur Kristinsson
Description
Þorvaldur Kristinsson hefur lifað tímana tvenna. Hann fæðist í Hrísey árið 1950 og nám leiddi hann erlendis og aftur heim nokkrum sinnum. Á viðburðarríkri ævi tók hann virkan þátt í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fyrir þá mikilvægu vinnu var hann sæmdur riddarakrossi Hinnar Íslensku fálkaorðu árið 2004.
Fyrir utan það vann hann við ritstörf, m.a. sem útgefandi, höfundur og ritstjóri. Hann er enn að því sumar kom út bókin Herbergi Giovannis eftir James Baldwin í þýðingu Þorvaldar.
Saga þessa mannréttindaforkólfs er einstök og það var heiður að ræða við hann um lífið, baráttuna og ritstörfin. Þetta er mjög ljúfur desemberþáttur sem yljar í svartasta skammdeginu enda Þorvaldur með einstaklega þýða og fallega rödd.
----
Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku
Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.
Instagram: bjarni.snaebjornsson
Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor
Tónlist: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir























